Stjórn KEA hefur ákveðið að ráða Halldór Jóhannsson í starf framkvæmdastjóra félagsins. Halldór Jóhannsson er 33ja ára viðskiptafræðingur að mennt og hefur starfað hjá KEA sem fjárfestingastjóri frá því í nóvember 2004. Á árunum 2002-2004 var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Kaldbaks og þar áður aðstoðarkaupfélagsstjóri KEA. Áður en Halldór kom til starfa fyrir KEA starfaði hann um fimm ára skeið hjá Landsbanka Íslands við fjármögnun, fjárfestingar og samrunaráðgjöf.

Halldór er kvæntur Erlu Árnadóttur, upplýsinga- og bókasafnsfræðingi, og eiga þau tvö börn.