Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Halldór var áður bæjarstjóri á Ísafirði.

Áður hafa Júlíus Vífill Ingvarsson og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir gefið kost á sér í fyrsta sæti.

Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík fer fram um miðjan nóvember. Sveitastjórnarkosningar fara fram í maí á næsta ári.