Halldóra Guðrún Hinriksdóttir hefur tekið sæti í stjórn Landsbréfa. Þetta var samþykkt að tillögu Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, á hluthafafundi félagsins. Halldóra tekur sæti Hönnu B. Hauksdóttur. Halldóra er forstöðumaður Verkefnastofu Landsbankans en hún var ráðin til Landsbankans í apríl í fyrra. Áður hafði hún starfað hjá HR, Íslandsbanka og Capacent en
Halldóra er með MBA gráðu frá Edinborgarháskóla með áherslu á stefnumótun og fjármál.