Hallgrímur Geirsson hefur óskað eftir því að hætta sem framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, sem greinir frá þessu á fréttavef sínum.

Þar segir að stjórn Árvakurs hafi fallist á þessa ósk Hallgríms en jafnframt farið þess á leit að hann gegni stöðu framkvæmdastjóra uns nýr kemur til starfa.

Hallgrímur tók við starfi framkvæmdastjóra Árvakurs þann 1. október árið 1995. Þar á undan var hann stjórnarformaður félagsins í níu ár.