Hallgrímur Thorsteinsson er nýr ritstjóri DV og tekur við af Reyni Traustasyni. Þetta var niðurstaðan á stjórnarfundi útgáfufélagsins í dag. Reynir Traustason hefur starfað sem ritstjóri DV undanfarin sjö ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá DV.

Hallgrímur hefur starfað sem þáttagerðarmaður á Rás 1 en hefur víða komið við í fjölmiðlum. Hann mun hefja störf á morgun.

“Mér er það kappsmál að DV skipi áfram sinn sterka sess sem framvörður íslenskrar fréttamennsku og haldi áfram að rjúfa þögnina þar sem aðrir vilja láta kyrrt liggja. Ég  hlakka til að hefja störf með öflugum hópi fagfólks á þessum mikilvæga fréttamiðli,” er haft eftir Hallgrími í tilkynningunni.