Hallgrímur Snorrason hættir sem hagstofustjóri um áramótin en þá verður Hagstofan lögð niður sem ráðuneyti. Þá taka gildi ný lög um Hagstofuna en samkvæmt þeim verður  Hagstofan sjálfstæð stofnun sem heyrir undir forsætisráðherra.

1. gr. laganna segir að Hagstofan sé miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og hafi forystu um tilhögun, samræmingu og framkvæmd hennar svo og um samskipti við alþjóðastofnanir á þessu sviði. Í tengslum við þessar breytingar hefur Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri ákveðið að láta af störfum. Þetta kemur fram á vef Forsætisráðuneytisins.

„Hallgrímur tók við starfi hagstofustjóra í ársbyrjun 1985 og hefur því gegnt starfinu í 23 ár, lengst allra núverandi hagstofustjóra í heiminum. Þennan tíma hefur hann haft forystu um þróun hagskýrslugerðar hér á landi og uppbyggingu Hagstofunnar auk þess sem hann hefur tekið virkan þátt í stefnumótun í opinberri hagskýrslugerð á alþjóðavettvangi," segir á vef ráðuneytisins.

Starf hagstofustjóra verður auglýst laust til umsóknar sunnudaginn 16. desember og er umsóknarfrestur til 10. janúar 2008. Núverandi staðgengill hagstofustjóra, Magnús S. Magnússon, verður settur til að gegna starfi hagstofustjóra þar til nýr hagstofustjóri hefur verið skipaður.