Í september voru fluttar út vörur fyrir 45 milljarða króna og inn fyrir 65,6 milljarða króna. Vöruviðskiptin í september, voru því óhagstæð um 20,6 milljarða króna. Í september 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 3,3 milljarða króna á gengi hvors árs. Þetta þýðir að hallinn hefur aukist um 624% frá árinu 2016.

Fyrstu níu mánuði ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 371,5 milljarða króna en inn fyrir 507,7 milljarða króna og var því halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 136,2 milljörðum króna, að því er Hagstofan greinir frá.

Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 90,1 milljarð á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn janúar-september 2017 var því 46,1 milljarði króna hærri en á sama tíma árið áður, eða um 51,2% aukning milli ára.

Verðmæti útflutnings var 34,3 milljörðum lægri

Mánuðina janúar til september 2017 var verðmæti vöruútflutnings 34,3 milljörðum króna lægra, eða 8,4% á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,5% lægra en á sama tíma árið áður.

Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 18,5% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski.

Janúar-september 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 11,8 milljörðum króna hærra, eða 2,4% á gengi hvors árs, en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum, skipum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.