Verðmæti vöruútflutnings í júnímánuði nam 50,7 milljörðum króna en á sama tíma nam verðmæti vöruinnflutningsins 71,6 milljörðum króna.

Hallinn á vöruviðskiptum voru því óhagstæð um 20,9 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands . Á sama tíma í fyrra nam halinn 14,9 milljörðum króna.

Vöruútflutningurinn hækkaði um 5,9 milljarða króna milli ára ef miðað er við júnímánuð hvors árs, eða sem nemur 13,1% á gengi hvors árs. Hækkunina má að mestu rekja til aukins útflutnings á iðnaðarvörum.

Hækkun vöruinnflutningsins var hins vegar meiri á milli ára, eða sem nemur 11,9 milljörðum króna, eða 19,9% á gengi hvors árs. Þar kemur helst til aukinn innflutningur á eldsneyti ásamt innflutningi á hrávörum og rekstrarvörum.