Yfirborð Hálslóns við Kárahnjúkastíflu er nú komið í tæpa 625 metra yfir sjávarmáli.  Á síðustu sjö dögum hefur lónið hækkað yfir tvö metra og má  búast má við að það fari á yfirfall um helgina. Það er rúmum þrem vikum síðar en í fyrrasumar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Landsvirkjun bendir á að þegar vatn rennur á yfirfalli myndast fossinn Hverfandi við vestari enda Kárahnjúkastíflu niður að gljúfurbarminum og þaðan steypist vatnið 90-100 metra niður í Hafrahvammagljúfur. Fossinn er aflmikill og getur orðið vatnsmeiri en Dettifoss.

Staða annarra miðlunarlóna

Fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun að kalt vor, sérstaklega á Norður og Austurlandi, orsakaði að vorflóð hófust seint í ár. Rennsli á Suðurlandi hefur einnig verið undir meðallagi í sumar og vantar tæpa fimm metra á að Þórisvatn fyllist og um 2,5 metra að Blöndulón fyllist. Landsvirkjun gerir ekki ráð fyrir að þessi lón fyllist í haust. Það ætti ekki að hafa áhrif á orkuafhendingu Landsvirkjunar á komandi  vetri en það verður metið þegar niðurdráttur lóna hefst í haust.