Greiðslur í fæðingarorlofi hækka um næstu áramót þegar fyrsta skrefið í áætlun um að koma greiðslunum í 600 þúsund krónur á mánuði árið 2020 verður tekið. Þetta kemur fram í frétt ráðuneytisins um nýframlagt fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár, en með breytingunni sem tekur nú gildi hækka hámarksgreiðslurnar úr 500 þúsund krónum í 520 þúsund.

Félags- og jafnréttismálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp á vorþingi 2018 þar sem síðari áfangar hækkunar fæðingarlofs verða lögfestir.

Lækkun dró úr fæðingarorlofstöku feðra

Er horft til þess að fólk hafi hag af því að sjá fyrir réttindi sín til fæðingarorlofs. Þannig geti fyrirliggjandi upplýsingar um hækkun hámarksgreiðslna orðið fólki hvati til frekari barneigna og einnig ýtt undir að foreldrar fullnýti rétt sinn til fæðingarorlofs.

Nokkur misbrestur hefur verið á því á liðnum árum í kjölfar þess að greiðslur í fæðingarorlofi voru lækkaðar en það dró verulega úr töku fæðingarorlofs feðra. Hlutfall feðra sem tóku styttra fæðingarorlof en þrjá mánuði var á árunum 2004 – 2006 um 19%. Til samanburðar var þetta hlutfall komið í um 34% árið 2014 og benda gögn til þess hlutfallið verði svipað fyrir árin 2015 og 2016.

Segir hækkunina mikilvæga fyrir jafnrétti á vinnumarkaði

„Það er í mínum huga stórt jafnréttismál að ná til feðranna þannig að þeir nýti vel rétt sinn til fæðingarorlofs og helst að fullu,“ segir Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra.

„Markmið laganna er að börnin geti notið samvista við foreldra sína á fyrstu mánuðum lífs síns. Það er bæði mikilvægt að tryggja börnunum þennan rétt en þetta er líka mjög mikilvægt fyrir jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.“