Sérfræðingar bandaríska verðbréfafyrirtækisins Buckingham hafa hækkað markgengið á McDonald?s eftir að hafa gert könnun á viðskiptum fjölda staða í mars. Niðurstöður þeirrar könnunar leiddu í ljós aukið hamborgaraát í marsmánuði og telja sérfræðingarnir að markgengi McDonalds ætti að vera 55 Bandaríkjadalir.