Á hluthafafundi Hampiðjunnar hf sl. föstudag var samþykkt að greiða tæplega 75 milljónir króna í arð til hluthafa félagsins. Það er um 1,3% af eigin fé félagsins í lok árs 2010, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar.

Þá var samþykkt að þóknun til stjórnarmanna fyrir árið 2010 verði 700 þúsund krónur og formaður fái þrefaldan hlut. Sjálfkjörið var í stjórn félagsins. Í stjórn sitja Bragi Hannesson formaður, Árni Vilhjálmsson, Jón Guðmann Pétursson, Kristján Loftsson, Sigurgeir Guðmannsson.