Rekstrartekjur Hampiðjunnar á síðasta ári námu 50,4 milljónum evra og jukust um 12% frá fyrra ári. EBITDA af reglulegri starfsemi var 7,8 milljónir. Hagnaður ársins var 7,6 milljónir evra, eða um 1178 milljónir íslenskra króna. Hann var 5,5 milljónir í fyrra. Í krónum talið lækkar hagnaðurinn um 325 milljónir.

Heildareignir voru 88,7 milljónir, vaxtaberandi skuldir voru 24,2 milljónir og eiginfjárhlutfall var 63% sem er um 3% meira en í fyrra. Stjórn félagsins mun leggja til við aðalfund að á árinu 2014 verði greiddar út 0,54 krónur á hlut í arð til hluthafa, eða kr. 262,8 milljónir.