Hampiðjan hagnaðist um 6,4 milljónir evra eða því sem nemur um 888 milljónum íslenskra króna á fyrri helmingi ársins og jókst hagnaður félagsins um 14% frá sama tímabili í fyrra. Rekstartekjur námu 85,3 milljónum evra á tímabilinu og jukust um 10% milli ára. EBITDA af reglulegri starfsemi hækkaði um 20% milli ára og nam 11,9 milljónum evra.

Heildareignir námu 228 milljónum evra í lok júní og eiginfjárhlutfall var 49,4%.

Í tilkynningu vegna uppgjörsins segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar:

„Velta samstæðunnar jókst um rúm 10% á milli ára og er aukningin að langstærstum hluta tilkomin vegna innri vaxtar eða um 72% en 28% eru tilkomin vegna ytri vaxtar með kaupum á félögum á síðari hluta ársins 2018.

EBITDA samstæðunnar eykst um 20% á milli ára og er nú, sem hlutfall af sölu, 14,0% en var 12,9% á sama tímabili síðasta ár.  Það er mat okkar að enn séu töluverðir hagræðingarmöguleikar til staðar innan samstæðunnar.

Sú breyting að sameina veiðarfæradeild Hampiðjunnar hf. og dótturfélagið Fjarðanet í byrjun þessa árs í fyrirtækið Hampiðjan Ísland og tryggja með því heildstæða þjónustu við viðskiptavini okkar á Íslandi hefur reynst mjög vel og stefnt er að því að taka fullbúið netaverkstæði á Neskaupstað í notkun núna í byrjun vetrar.

Styrking framleiðslueiningar samstæðunnar í Litháen, Hampiðjan Baltic, með nýfjárfestingum í framleiðslutækjum byggir enn frekar undir vöxt samstæðunnar með aukinni framleiðslugetu í veiðarfæraefnum, ofurtógum og hnútalausum netum fyrir fiskeldi.

Í byrjun þessa mánaðar kynntum við nýjasta vöruþróunarverkefni okkar en það er ljósleiðarakapall með þrem ljósleiðurum með nær ótakmarkaðri flutningsgetu.  Kapallinn sem ber nafnið DynIce Optical Data er fyrst og fremst ætlaður fyrir gagnaflutning frá trolli upp í brú og opnar hann fyrir möguleika á lifandi myndum frá trollinu ásamt tengingum við ýmsa nema og fjölgeislamæla.  Það er trú okkar að þessi hátæknikapall muni gjörbreyta veiðitækni framtíðarinnar og styrkja enn frekar stöðu Hampiðjunnar sem leiðandi veiðarfæraframleiðanda á heimsvísu.“