Nasdaq birti í dag lista yfir þau félög sem verða í First North 25 vísitölunni en Nasdaq Iceland tilkynnti nýlega um þessa nýju vísitölu. First North 25 er vísitala þeirra 25 félaga sem eru stærst og mest er átt viðskipti með á Nasdaq First North og Nasdaq  First North Premier.

Á meðal þeirra félaga sem varða i vísítölunni er Hampiðjan, en félagið er eina íslenska félagið á listanum.

Val á þeim 25 félögum sem eru í First North 25 fer fram í tveimur skrefum. Fyrst eru fundin 30 stærstu félögin eftir markaðsvirði og síðan eru 25 þeirra sem mest er átt viðskipti með valin í vísitöluna, en þar er litið til samanlagðar heildarfjárhæðar viðskipta yfir sex mánaða tímabil. Vísitalan er endurskoðuð tvisvar á ári.