Kaupandi á 2% hlut Landsbankans í Hampiðjunni var félagið sjálft. Landsbankinn seldi 10 milljónirhluta að nafnverði að undangengnu útboði fyrr í þessari viku. Verð var 8,5 krónur á hlut. Markaðsverð var því 85 milljónir króna.

Tilkynnt var um söluna og síðar kaupin til Kauphallar. Eftir viðskiptin á Hampiðjan eigin bréf að andvirði 13,4 milljónir að nafnvirði. Heildarmarkaðsvirði félagsins miðað við síðustu viðskipti nemur um 4.250 milljónum króna.