Hampiðjan hf. í gegnum dótturfyrirtæki sitt Hampidjan Canada á Nýfundnalandi í Kanada, hefur gengið frá kaupum á veiðarfærahluta North Atlantic Marine Services & Supply (NAMSS).  Um er að ræða þrjú netaverkstæði sem eru staðsett á austurströnd Kanada að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Kaupverðið sem greitt er fyrir þennan hluta NAMSS er um 1,35 milljónir Kanadadollara sem nemur um 110 milljónum króna á gengi dagsins í dag.  Því til viðbótar kaupir Hampidjan Canada, lager að verðmæti 2,0 milljónir Kanadadollara eða 163 milljóna króna. Áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðu Hampiðjunnar þegar samlegðaráhrifum er að fullu náð eru um 0,7 milljónir evra sem nemur um 88 milljónum íslenskra króna.

Syðsta verkstæðið er í Dartmouth rétt norðan við Halifax á Nova Scotia, annað er í St. Johns á Nýfundnalandi og það þriðja í Port aux Chroix sem er nyrst á Nýfundnalandi og sem þjónar einnig útgerðum á Labrador.  Starfsemin er að mestu tengd veiðarfæragerð og sölu á útgerðarvörum.