Hampiðjan verður afskráð af aðallista Kauphallar Íslands þann 30. júní, segir greiningardeild Íslandsbanka.

Félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði um lágmarksfjölda hluthafa, sem er 300.

Þess í stað verður verður fyrirtækið skráð á Fjármálatorgi sem er nýr hlutabréfamarkaður í Kauphöllinni.

Jarðboranir verður einnig afskráð á næstu mánuðum. Á móti fækkuninni kemur að Avion Group verður skráð í Kauphöll Íslands innan skamms, segir greiningardeildin.

Fjöldi félaga á aðallista Kauphallarinnar stefnir því í 26 en er sem stendur 27.