Samkvæmt tölum, sem fram koma í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um ástand fíkniefnamála í heiminum árið 2005, er hvergi dýrara að neita kannabis en í Japan. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna kostar grammið af fíkniefninu þar ríflega 58 Bandaríkjadali.

Athygli vekur að bandarískir fíkniefnaneytendur þurfa að borga tvöfalt meira fyrir grammið en nágrannar þeirra í norðri: Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna kostar það 15 dali í Bandaríkjunum en 7,5 í Kanada.