Kauptilboði 365 hf. til hluthafa félagsins um kaup á bréfum þeirra á genginu 1,20 kr. lauk kl. 16:00 í gær.

Kaupin eru í tengslum við fyrirhugaða afskráningu félagsins. Eigendur 7% hlutafjár í 365 hf., þ.e. um 165 aðilar, samþykktu tilboðið. Aðrir hluthafar munu eiga hluti sína áfram eftir afskráningu félagsins.

Straumur fjárfestingafélag mun annast greiðslu til þeirra hluthafa sem tóku tilboði félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.