Sala á Launer handtöskum hefur stóraukist eftir andlát Margaret Thatcher. Thatcher notaði töskurnar oft og tíðum. Samkvæmt frétt e24.no þá kynntist Thatcher töskunum þegar framkvæmdastjóri Launer, Gerald Bodmer, sendi henni eina slíka árið 1980. Eftir það var hún tryggur viðskiptavinur Launer.

Eftir andlát Thatcher þá jókst sala á töskunum um 53% samkvæmt tilkynningu frá Launer. Helsta söluaukningin var daginn sem Thatcher var jarðsett.

Launer handtaska
Launer handtaska