Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, og Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna, hafa ákveðið að hætta sem forseti og 1. varaforseti borgarstjórnar. Þær hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þess efnis. Þar segir:

„Undirrituð Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hefur ákveðið að hætta sem forseti borgarstjórnar og formlega óskað eftir því að kosinn verði nýr forseti á næsta borgarstjórnarfundi. Undirrituð Sóley Tómasdóttir oddviti Vinstri grænna hefur sömuleiðis ákveðið að hætta sem 1. varaforseti borgarstjórnar.

Þegar ný borgarstjórn tók við í júní 2010, varð það að samkomulagi milli allra flokka að halda áfram að innleiða ný vinnubrögð og aukið samstarf í samræmi við yfirlýsingu allrar borgarstjórnar þar sem sagði:

,,Vilji er fyrir því hjá nýkjörinni borgarstjórn að auka samvinnu milli flokka og nýta krafta allra borgarfulltrúa í samræmi við vinnubrögð fráfarandi borgarstjórnar.“

Liður í þessu samkomulagi var að við oddvitar minnihlutans tókum að okkur embætti forseta borgarstjórnar og 1. varaforseta, enda væri það táknrænt um áframhaldandi samstarf meirihluta og minnihluta. Allt frá því að nýr meirihluti tók við hafa fulltrúar minnihlutans lagt sig fram um að standa við umrætt samkomulag. Það hefur verð gert með því að flytja tillögur um aðgerðir og lausnir vegna brýnna hagsmunamála borgarbúa en einnig með tillögum um að kalla að borðinu starfsfólk, fagaðila og íbúa til samráðs. Eins og ítrekað hefur komið fram hefur þessi viðleitni minnihlutans þó litlum árangri skilað og meirihlutinn tekið allar stórar ákvarðanir án raunverulegs samráðs.

Það er mat okkar að með atkvæðagreiðslunni í gærkvöldi um miklar breytingar á þjónustu við börn í skólum borgarinnar sé það fullreynt að til staðar sé nokkur raunverulegur vilji hjá meirihlutanum til að ástunda betri vinnubrögð og auka aðkomu íbúa að lykilákvörðunum.

Með því að þvinga þessar breytingar í gegn í andstöðu við 12.000 íbúa og rúmlega 90% umsagna foreldra og hagsmunaaðila, er með einhliða valdboði gengið svo langt gegn vilja borgarbúa og fyrrgreindu samkomulagi borgarstjórnar að algjör trúnaðarbrestur hefur orðið milli borgarstjórnar og borgarbúa.

Það eru mikil vonbrigði að meirihlutinn hafi ekki hugrekki til þess að virkja þátttöku íbúa og starfsfólks, auka samvinnu minni- og meirihluta og innleiða þannig ný og betri stjórnmál.“