Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar að sækjast eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar. Hún stefnir jafnframt á að bjóða sig fram til varaformanns flokksins á næsta landsfundi. Þetta hefur Fréttatíminn eftir heimildarmönnum sínum í dag.

Ætla má að Hanna Birna berjist þá um fyrsta sætið við þá Illuga Gunnarsson og Guðlaug Þór en þeir tveir síðarnefndu tókust á um sætið fyrir síðustu Alþingiskosningar þar sem Illugi bar sigur úr býtum.

Halda þarf landsfund hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir næstu kosningar en enn hefur ekki veirð ákveðið hvort haldið verður prófkjör í í Reykjavík eða raðað á lista.