Innanríkisráðuneytið hefur sett af stað hóp sem mun halda utan um þau samgönguverkefni sem gætu hentað sem fjárfestingaverkefni einkaaðila í samstarfi við ríkið. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir Sundabraut og uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli vera dæmi um verkefni sem þurfi að ráðast í á næstunni.

VB Sjónvarp ræddi við Hönnu Birnu en nánar má lesa um málið í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.