Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins féllst í dag á tillögu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fráfarandi oddvita þess efnis að Hanna Birna Kristjánsdóttir taki við sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Fyrr í dag greindi Viðskiptablaðið frá því að Vilhjálmur Þ. myndi ekki taka við embætti borgarstjóra á næsta ári og hætta sem oddviti flokksins í borgarstjórn.

„Sú breyting tekur gildi þegar í stað, en að loknu sumarleyfi tekur Hanna Birna við formennsku í borgarráði en ég við embætti forseta borgarstjórnar og starfa áfram að hagsmunamálum borgarbúa og stefnumálum Sjálfstæðisflokksins,“ segir í yfirlýsingu frá Vilhjálmi.

Þá kemur fram í yfirlýsingunni að í lok kjörtímabilsins árið 2010 hefur Vilhjálmur unnið fyrir Reykvíkinga í 28 ár.

„Eins og ég hef lýst yfir áður mun ég ekki gefa kost á mér til forystu í borgarmálum eftir það. Í ljósi þess og til að eyða allri óvissu tel ég eðlilegt að Hanna Birna, sem var í 2. sæti framboðslistans í kosningunum 2006, taki við störfum oddvita og óska ég henni velfarnaðar í því mikilvæga hlutverki,“ segir Vilhjálmur.