Golf Pro Assistant er eitt tíu fyrirtækja sem valið var til þátttöku á frumkvöðlanámskeiðinu Startup Reykjavík. Daði Janusson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda fyrirtækisins, segir möguleikana marga en stofnendur fyrirtækisins vinna að hönnun hugbúnaðar fyrir golfkennara.

Þeir hanna búnaðinn nú í samstarfi við íslenska golfkennara en vilja kynna fyrirtækið utan Íslands þegar fram líða stundir.