Vinna er komin vel af stað hjá Vegagerðinni við hönnun og undirbúning fyrir útboð á nýrri brú yfir Ölfusá norðan við Selfoss. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .

Þar kemur fram að búist sé við að útboð geti farið fram í lok næsta árs og framkvæmdir geti hafist árið 2017, en samkvæmt samgönguáætlun Alþingis er gert ráð fyrir brúnni á tímabilinu 2017 - 2019. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 4,5 milljarðar króna.