Hannes Smárason, forstjóri FL Group, ákveðið að segja sig úr stjórn Glitnis, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Ástæða afsagnarinnar er fyrirsjáanleg stjórnarþátttaka Hannesar í Straumi-Burðarási. Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá FL Group, tekur nú sæti í stjórn Glitnis banka. Jón var fyrsti varamaður Hannesar Smárasonar, sem nú hefur sagt sig úr stjórninni.

FL Group keypti nýverið 24,2% hlut Magnúsar Kristinssonar og Kristins Björnssonar í Straumi-Burðarási. Félagið á rúmlega 20% hlut í Glitni.