Landsliðsmarkmaðurinn Hannes Halldórsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Randers FC, en hann hefur spilað með hollenska liðinu NEC Nijmegen síðan í júlí 2015 þegar hann gerði tveggja ára samning við félagið.

Varði Hannes flest mörk allra markmanna á mótinu, eða 27. Segir hann það hafa verið ótrúlegt ævintýri að hafa spilað með íslenska landsliðinu á EM. Nú sé hann mjög stoltur af því að hefja nýjan kafla hjá danska úrvalsdeildarliðinu Randers FC frá Jótlandi.

Hannes mun spila sinn fyrsta leik á mánudag, þegar Randers spilar fyrsta leik tímabilsins.