Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, hefur stefnt slitastjórn Glitnis vegna málsóknar slitastjórnarinnar á hendur Hannesi, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Ingibjörgu Pálmadóttur, Lárusi Welding og fleirum fyrir dómstól í New York. Mál slitastjórnarinnar var höfðað vorið 2010 en dómari í New York vísaði því frá þar sem það heyrði ekki undir dóminn.

Í frétt Vísis segir Gísli Guðni Hall, lögmaður Hannesar, ekki nákvæmlega til um það hversu háar skaðabætur Hannes vill fá, en málið snýst um að fá málskostnað hans fyrir bandaríska dómstólnum endurgreiddann. Gísli segir að málsvörnin hafi verið ansi dýr.