Eignarhaldsfélagið Oddaflug hefur bætt við sig 4,73% hlut í FL Group. Félagið hefur þar með aukið hlut sinn úr 18,90% í 23,63% af heildar hlutafé.

Hannes Smárason, forstjóri FL Group, er eigandi Eignarhaldsfélagsins Oddaflugs.

Ekki kemur fram í tilkynningu á hvaða gengi kaupin eru gerð en ef miðað er við gengi FL Group eins og það var við lok markaðar í gær má ætla að viðskiptin nemi tæpum 6 milljörðum króna.