Hannes Smárason, forstjóri FL Group, hefur fært 19,77% hlut sinn í FL Group til Oddaflugs BV frá Eignarhaldsfélaginu Oddaflug ehf., samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Oddaflug BV er staðsett í Hollandi.

Þann 29. desember tilkynntu FL Group um það hefði fært 25,97% hlut sinn í Glitni í tvö eignarhaldsfélög, sem bæði eru staðsett í Hollandi.