Fjárfestingafélagið Prímus ehf., sem er í eigu Hannesar Smárasonar, keypti í gær, 3. október, helming hlutafjár Eignarhaldsfélagsins Oddaflugs ehf., í Flugleiðum. Eignarhaldsfélagið Oddaflug ehf. er eigandi hlutafjár í Flugleiðum hf. að nafnverði kr. 743.283.642 sem samsvaraði 32,22% heildarhlutafjár í félaginu. Seljandi er Straumborg ehf., eignarhaldsfélag Jóns Helga Guðmundssonar stjórnarmanns í Flugleiðum. Fjárhæð kaupverðsins samsvarar því að hlutabréf í Flugleiðum hf. hafi verið seld á genginu 9,6.

Hannes Smárason er stjórnarformaður Flugleiða hf en hann er eini eigandi Eignarhaldsfélagsins Oddaflugs eftir viðskiptin. Samhliða viðskiptunum hefur Jón Helgi Guðmundsson sagt sig úr stjórn Flugleiða.