Hannes Guðmundsson hefur sagt sig úr stjórn Nýherja hf. Hannes tók í síðustu viku við starfi útibússtjóra hjá Íslandsbanka og hefur samkvæmt reglum bankans ekki heimild til setu í stjórn Nýherja. Guðmundur Jóh. Jónsson tekur sæti aðalmanns í stjórninni í hans stað.