Harald Aspelund, fastafulltrúi Íslands í Genf, hefur verið kjörinn formaður viðskiptarýni Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) en þetta kemur fram í tilkynningu Utanríkisráðuneytisins .

Í gær stýrði Harald fjarfundi aðildarríkja stofnunarinnar um það hvernig skuli tryggja áframhaldandi starf hennar í ljósi COVID-19 faraldursins og hvernig viðskiptarýni stofnunarinnar geti haldið áfram.

Viðskiptarýnin er vettvangur innan WTO þar sem viðskiptastefnur allra aðildarríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar eru teknar til skoðunar með reglubundnum hætti með það að markmiði að tryggja samræmi við reglur stofnunarinnar og stuðla að óheftum viðskiptum.

Sem hluti af þessu ábyrgðarhlutverki verður Harald einnig í sérstakri þriggja manna valnefnd fyrir nýjan framkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem valinn verður fljótlega til að taka við af Roberto Azevêdo frá Brasilíu, núverandi framkvæmdastjóra.