Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknar, hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram til Alþingis í komandi kosningum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Haraldi.

Haraldur mun koma til með að hefja búskap með foreldrum sínum á Urriðafossi. Birna Harðardóttir og börn þeirra tvö munu flytja muni flytja með þeim. Hann segist þakklátur fyrir þann tíma sem hann hefur fengið að vinna fyrir land og þjóð.