Haraldur Þórðarson
Haraldur Þórðarson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Haraldur I. Þórðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta hjá Straumi fjárfestingabanka.

Haraldur var áður framkvæmdastjóri Fjárstýringar hjá Exista hf. árin 2006-2010. Þar á undan starfaði hann á fjárstýringarsviði Kaupþings Banka, árin 2002-2006.

Haraldur er með MBA gráðu frá IESE Business School á Spáni.

Nýlega var greint frá því á vef Viðskiptablaðsins að Straumur hefði ráðið tvo miðlara úr Arion og fjóra starfsmenn, meðal annars úr fyrirtækjaráðgjöf, Íslandsbanka.