Haraldur I. Birgisson hefur tekið við starfi aðstoðarframkvæmdarstjóra Viðskiptaráðs. Áður vann hann sem yfirlögfræðingur ráðsins.

Í tilkynningu Viðskiptaráðs segir að fráfarandi aðstoðarframkvæmdarstjóri, Frosti Ólafsson, hverfi nú til frekara náms erlendis. Hann hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá árinu 2006, fyrst sem hagfræðingur þess.

Haraldur hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá ársbyrjun 2007. Áður starfaði hann hjá Landsbankanum og Sparisjóði Kópavogs. Haraldur er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.