Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri var í gær sæmdur konunglegri heiðursorðu frá Dönum, fyrir starf sitt í þágu Norrænnar lögreglusamvinnu sl. áratug.
Það var danski ríkislögreglustjórinn sem afhenti orðuna fyrir hönd dómsmálaráðherra Danmerkur.
Afhendingin fór fram í tengslum við fund ríkislögreglustjóra á Norðurlöndum sem nú stendur yfir hér á landi.