Haraldur Bergsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar. Hann tekur við starfinu af Baldri Björnssyni, stofnanda félagsins. Baldur mun halda áfram í stjórn Múrbúðarinnar og vinna náið með félaginu. Þetta kemur fram í fréttilkynningu frá fyrirtækinu.

Haraldur er 36 ára gamall og var síðast framkvæmdastjóri Next á Íslandi. Áður var hann m.a. verslunarstjóri og starfaði á verslanasviði Byko. Haraldur er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

„Múrbúðin er byggingavöruverslun með útsölustaði á Kletthálsi í Reykjavík og Reykjanesbæ ásamt því að selja í gegnum endursöluaðila. Múrbúðin var stofnuð af Baldri Björnssyni árið 2002. Í dag starfa hjá fyrirtækinu um 20 manns,“ kemur fram í tilkynningunni.