Haraldur Ólafsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ergo og mun hann hefja störf um miðjan september. Haraldur hefur fimm ára starfsreynslu hjá SP-Fjármögnun og þar af síðustu fjögur árin í framkvæmdastjórn félagsins. Áður en Haraldur hóf störf hjá SP-Fjármögnun starfaði hann hjá Sjóvá. Það er mikill fengur að fá Harald sem liðsmann inn í sterkan hóp starfsmanna Ergo. Haraldur er kvæntur Sigrúnu Össurardóttur og eiga þau þrjú börn.