Veitingastaðurinn Hard Rock mun opna í Iðu við Lækjargötu eftir áramót. Þetta kemur fram í frétt mbl.is um málið en þar segir að bókaversluninni Iðu sem hefur verið starfrækt í húsnæðinu verður lokað um áramótin.

Afsláttur verður á öllum vörum Iðu fram til áramóta og að sögn framkvæmdastjóra verslunarinnar fara nokkrir dagar á nýju ári í að rýma húsnæðið.

Iða var með leigu­samn­ing til sex ára í hús­inu en Hard Rock keypti bókaverslunina út úr samn­ingn­um. Fyrr á árinu tryggði Birgir Þór Bieltvedt, einn eigenda Domino´s sér leyfi fyrir staðnum hér á landi.