„Landssambandið mun á öllum stigum máls þessa leitast eftir fremsta megna að stöðva fyrirhugaða framkvæmd eldis á norskum laxi í Ísafjarðardjúpi.  Mun Landssambandið leita atbeina dómstóla til að hnekkja útgáfu eldisleyfis ef svo ber undir. Er hér með skorað á yður að falla frá fyrirhugaðri framkvæmd." Þetta kemur fram í bréfi sem Landssamband veiðifélaga (LV) hefur sent Hraðfrystihúsinu Gunnvöru (HG) á Ísafirði. Bréfið er sent vegna áforma um HG um 6.800 tonna sjókvíaeldi á sex svæðum í Ísafjarðardjúpi. HG hefur auglýst drög að matsáætlun vegna laxeldisins.

„Landssambandið sér ekki ástæðu til að fjalla um einstaka þætti  matsáætlunar HG  á þessu stigi málsins, en mun gera viðeigandi athugasemdir verði frummatsskýrsla lögð fram til kynningar," segir í bréfi LV.

„Þó er rétt að vekja athygli yðar á að í matsáætlun kemur fram að Hraðfrystihúsið Gunnvör er tilgreindur framkvæmdaaðili og er matsáætlun sett fram í nafni þess fyrirtækis.  Þá kemur einnig fram í matsáætlun að „ Nú hefur öll fiskeldisstarfsemin verið flutt undir Háafell“ .

Háafell ehf. mun vera einkahlutafélag  og annar og sjálfstæður lögaðili þótt það sé alfarið í eigu HG.  Landssamband veiðifélaga telur augljóst að það samræmist ekki lögum nr.106/2000 um mat á umhverfisáhrifum að framkvæmdaaðili sé annar en sá sem skal hafa framkvæmdina á hendi sem  tekin er til mats.

Það vekur athygli Landssambandsins að HG skuli hafa flutt sjókvíaeldisstarfsemi sína í óburðugt einkahlutafélag nú, þegar sótt er um leyfi til að ala norskan lax í sjókvíum svo nærri verðmætum laxveiðiám.  Nærtækasta skýringin er sú að félagið sé að skjóta sér undan skaðabótakröfum sem munu rísa vegna þess umhverfistjóns sem starfsemin mun valda í nærliggjandi laxveiðiám ..."

Brot á samkomulagi frá 1988

Á vef LV segir Jón Helgi Björnsson, formaður félagsins , málatilbúnað Hraðfrystihússins Gunnvarar gallaðan þar sem HG sé skráður framkvæmdaaðili í matsferlinu en starfsemin sé í rauninni hjá öðrum lögaðila, Háfelli ehf.

Jón Helgi segir HG hafa stundað blekkingaleik þegar fyrirtækið sótti um leyfi til að ala regnboga en ætlunin hafi svo verið að fá þessum leyfum breytt í laxeldisleyfi.  Hann segir að Landssambandið muni skjóta málinu til dómstóla verði gefið út leyfi til eldisins enda sé eldi norskra laxa við ósa laxveiðiáa gróft brot stjórnvalda á samkomulagi hagsmunaaðila og landbúnaðarráðuneytisins frá 1988 um að aðeins skyldi leyfa eldi á norskum laxi í landstöðvum.