Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun hefur harkan í forkosningum Repúblíkanaflokksins aukist síðustu daga í aðdraganda kosninga í Flórída á þriðjudaginn.

Helstu keppinautarnir eru Mitt Romney og Newt Gingrich. Þeir hafa báðir ráðist harkalega á hvorn annan með auglýsingum í vikunni.

Newt Gingrich birti í gær auglýsingu þar sem hann sakaði Mitt Romney um og segja ósatt í kappræðum sem fóru fram á fimmtudagskvöld.  Hér má sjá auglýsinguna frá Gingrich.

Mitt Romney hefur gagnrýnt Gingrich harkalega fyrir ráðgjafastörf hans fyrir hálfopinbera íbúðalánasjóðinnFreddie Mac.