Stjórn Kvennanefndar Verkfræðingafélags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem harmað er að gengið hafi verið fram hjá Ragnheiði I. Þórarinsdóttur, aðstoðarorkumálastjóra, við skipan í stöðu orkumálastjóra. Í tilkynningu vegna málsins er bent á að í jafnréttisáætlun iðnaðarráðuneytis segir að taka skuli mið af jafnréttissjónarmiðum og að kynjunum skuli ekki mismunað með neinum hætti.

„Þá segir að hlutur kynjanna í störfum hjá ráðuneytinu skuli jafnaður eins og kostur er og að þess skuli jafnan gætt að sá umsækjandi sé ráðinn sem talinn er hæfastur til þess að gegna starfi, að teknu tilliti til menntunar og hæfni en án tillits til kynferðis. Séu tveir eða fleiri umsækjendur af báðum kynjum taldir jafn hæfir til ráðningar í auglýst starf skal að jafnaði ráðinn umsækjandi af því kyni sem er í minnihluta á viðkomandi sviði,“ segir í tilkynningunni.

Þar er ennfremur bent á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar 2007 segir að stefnt skuli að því að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórnunarstörfum á vegum ríkisins.

„Af þeim gögnum sem fyrir liggja er með engu móti annað séð en að Ragnheiðurhafi verið a.m.k. jafnhæfur umsækjandi og Guðni. Sorglegt er að ráðherra flokks sem sagt hefur að jafnréttismál yrðu sett efst á dagskrá, í nýhöfnu stjórnarsamstarfi, hafi ekki nýtt hér gullið tækifæri til að láta verkin tala,“ segir í tilkynningunni.