Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, harma að Vestmannaeyjabær hafi lagt fram 100 milljónir króna til stofnfjárkaupa í Sparisjóði Vestmannaeyjum í tengslum við endurskipulagningu sjóðsins.
"Eyverjar telja það ganga gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins að sveitarfélög fjárfesti í fjármálafyrirtækjum sem og öðrum fyrirtækjum. Það er ekki hlutverk sveitarfélaga að leggja einkafyrirtækjum til fjármuni þegar illa árar. Sparisjóður Vestmannaeyja hlýtur að geta fengið núverandi stofnfjáreigendur eða aðra til að leggja fram fé ef um góða fjárfestingu sé að ræða," segir í ályktun Eyverja.
Auk Vestmannaeyjabæjar hafa Vinnslustöðin og Lífeyrissjóður Vestmannaeyja lagt fram fjármuni til þess að auka stofnfé sparisjóðsins. Þá mun Seðlabankinn eignast 55% hlut í sparisjóðnum með því að breyta kröfum í stofnfé. Stofnfé sparisjóðsins hefur verið aukið upp í rúman einn milljarð króna og þynnist hlutur eldri stofnfjáreigenda um 72%.
Sparisjóðurinn tapaði 1.457 milljónum króna árið 2008 og var eiginfjárhlutfall (CAD) sjóðsins um 3,8% í lok ársins, langt undir 8% lögboðnum mörkum.