Matreiðslumennirnir og verðlaunakokkarnir Bjarni Gunnar Kristinsson og Þráinn Freyr Vigfússon hafa nú ráðið sig til starfa í tónlistarhúsið í Reykjavík, Hörpuna. Báðir hafa þeir starfað á Grillinu á Hótel Sögu um árabil en Bjarni Gunnar var undir það síðasta yfirmatreiðslumeistari hótelsins.

Bjarni Gunnar verður yfirmatreiðslumaður í veislueldhúsi en Þráinn Freyr verður yfirmatreiðslumaður á A la carte veitingastað Hörpunnar.