Stórleikarinn Harrison Ford hefur ákveðið að leika í The Expendables. Þessu greinir Sylvester Stallone, handritshöfundur The Expendables, frá á Twitter.

Í frétt á vef Empire segir að Stallone muni leika í þriðju myndinni ásamt Mickey Rourke, Wesley Snipes, Milla Jovovich, Kellan Lutz og óstaðfesta fréttir hermi að Jackie Chan og Mel Gibson.

Þá muni gamalkunnug andlit einnig láta sjá sig, svo sem Jason Statham, Terry Crews, Dolph Lundgren og  Randy Couture. Plus. Hugsanlegt sé að Arnold Schwarzenegger verði líka með aftur.

Stallone hafði vonast til þess að Bruce Willis verði með í nýju myndinni en hann greinir frá því á Twitter að sá síðarnefndi sé ekki til í tuskið.