Háskólinn í Reykjavík (HR) hefur gengið frá leigusamningi við Klasa hf., sem er eigandi húsnæðis Morgunblaðsins í Kringlunni, um leigu á öllu Morgunblaðshúsinu, segir í fréttatilkynningu.

HR mun leigja húsnæðið, sem er um 4.700 fermetrar að stærð, þar til háskólinn flytur í nýtt húsnæði í Vatnsmýrinni árið 2009.

Húsnæðið verður afhent HR í júlí næstkomandi, þegar Morgunblaðið flytur ritstjórnarskrifstofur sínar og starfsemi blaðsins að Hádegismóum 2.