Háskólinn í Reykjavík (HR) og Icelandair Group undirrituðu í dag samstarfssamning um eflingu rannsóknarverkefna nemenda og kennara skólans. Samningurinn er til þriggja ára og nema greiðslur 15 milljónum króna á tímabilinu. Samkvæmt samningnum verður lögð áhersla á þverfaglegar rannsóknir á sviði ferðaþjónustu og flugsamgangna og að nýta þann styrk sem felst í starfi háskólans á sviði tækni, viðskipta og laga.

Í tilkynningu frá skólanum er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair Group, að mikilvægt sé að fyrirtæki vinni nánar með háskólum landsins í rannsóknum og nýsköpun.

„Við bindum miklar vonir við samstarf okkar við HR og teljum nauðsynlegt að efla rannsóknir á sviði flug- og ferðamála á Íslandi,“ segir hann og hvetur fyrirtæki landsins til að leggja sitt af mörkum við eflingu háskólamenntunar þar sem vel menntað starfsfólk og rannsóknir eru undirstaða öflugs atvinnulífs.